Showing posts with label hnetusmjör. Show all posts
Showing posts with label hnetusmjör. Show all posts

Monday, June 1, 2015

Hnetusmjörsís



Síðustu sólahringa finnst mér eins og ég hafi losnað við mikla byrði af herðum mínum. Það var ótrúlega gott að skrifa og koma þessu niður á rafrænt blað. Ég er ótrúlega þakklát fyrir fallegar kveðjur sem ég hef fengi frá ykkur. Þær hafa hjálpað mikið.

 Ég hef verið með algjört verkstol þegar kom að blogginu. Ekki vantaði hugmyndirnar heldur bara að fá mig til að prufa mig áfra, mynda og skrifa. Ég fæ svona stundum en í morgun vaknaði ég og vildi ekkert annað en prófa mig áfram í eldhúsinu.


Hnetumjöl frá Funksjonell er nýtt á markaðinum hér á landi. Ég er búin að vera bíða spennt eftir að fá að prófa. Er búin að sjá svo margar uppskriftir á erlendum síðum með þessu snillar mjöli sem er að sjálfsögðu glútenlaust.

Eitt sem er frábært með þetta mjöl að það er mjög auðvelt að útbúa hnetusmjör úr því á núll einni.
Sykur, glútenlaust og próteinríkt hnetusmjör en 50% af mjölinu er prótein.





Hnetusmjör


20g af hnetumjöli frá Funksjonell
30-40ml af vatni (eftir hversu mjúkt þú vilt það)
salt klípa
2-3 tsk sukrin gold fyrir þá sem vilja

Setjið í skál og blandið vel saman.


Ég varð svo að prófa að útbúa hnetusmjörsís og guð hvað hann var góður! Hann var ekki lengi að hverfa ofan í magan á mér og syninum þegar hann kom heim úr skólanum. Vildi samt að ég hefði átt salthnetur til að saxa og setja í ísinn.

Hnetusmjörsís


1 egg
50g Sukrin:1 
70g hnetusmjör
380ml rjómi
5 dropar Caramel Toffee stevía

Þeytið saman eggi og sukrin:1. Bætið við hnetusmjöri og stevíu og í lokin óþeyttum rjóma. Þegar allt er vel blandað setjið þið í ísvél og farið eftir fyrirmælum á henni.

Ef þú átt ekki ísvél er hægt að þeyta rjóman og blanda svo öllu saman við og setja í box og í frystinn. Gott væri þá að hræra aðeins í ísnum á 30 mínútna fresti.



















Tuesday, April 7, 2015

Hnetusmjörs gotterí

Páskarnir búnir, ljúft. Já ég elska að komast í rútínu aftur.
Við vorum bara þrjú í kotinu þetta árið þar sem strákarnir voru hjá pabba sínum á Akureyri.
Þar var víst bongóblíða og miðjan mín kom heim í gær og var greinilega að safna freknum á Akureyri.
Við hjónin fórum í hjólatúr með yngsta á meðan og kíktum í Húsdýragarðinn á milli þess að vera í náttfötunum og hafa kósý.
Við fengum öll súkkulaði egg. Ég fékk mér sjálf hvítt súkkulaðiegg.
Allir voða spenntir fyrir páskunum og svo kom dagurinn. Við leituðum af eggjunum, settumst niður og fengum okkur smá bita og svo bara búið. Því eigum við hér 3 næstum óétin páskaegg.

Á næsta ári ætla ég ekki að kaupa mér egg. Ég datt aðeins út af sporinu um páskana og fékk mér ýmislegt sem ég hef ekki látið eftir mér lengi. Sé svo eftir því. Hef verið laus við gigtarverki allt þetta ár og svo núna, blehh já ég ætla víst aldrei að læra þetta.

En hér er uppskrift sem ég slumpaði saman um daginn.
Átti þetta heillengi í frystinum. Gleymdi þessu þar.
Elsta barnið var ekki lengi að þefa þetta upp og kláraðist svo samdægurs.

En þetta er æði til að fá sér smá bita þegar manni vantar smá til að narta í. Gott er að skera nammið í litla bita og geyma í frystinum eða ef þið eruð viss um að þetta verði ekki til lengur en í 2 daga þá er hægt að geyma í kælinum og rífa klípu af og fá sér.



Hnetusmjörs gotterí

100g hnetusmjör t.d H-Berg
1msk sukrin gold
15g smjör
1-2msk rjómi eða kókosmjólk
75g salthnetur
1-2 dropar toffee stevía frá now

Setjið í pott og hitið á vægum hita. Hrærið í og blandið vel saman og setjið svo í silikonform eða form sem er með bökunarpappír á og í frysti í ca 30 mínútur.
Skerið í bita og geymið í frysti.



Sunday, August 31, 2014

Hnetusmjörs brownie

Þá er sumarið formlega búið. Börnin byrjuð í skólanum og fyrstsa haustlægðin búin að herja á okkur síðasta sólarhinginn. Eins og alltaf þegar haustið byrjar að taka á sig mynd og ég kveiki á trilljón kertum þá kemur jólabarnið upp í mér. Já ég er þessi skrítna sem byrja að hugsa og skipuleggja jólin í lok ágúst. En að bakstri. Henti í þessa köku í dag því ég varð að prófa nýju strásætuna frá Via-Health sem er væntanleg í Krónuna núna eftir helgina og ómæ ómæ, þetta var svooo gott. Stundum finnst mér það vera kostur ef börnin finnst baksturinn vondur, þá þarf ég ekki að deila með þeim. Eins og með þessa. Hefði alveg mátt finnast hún vond svo ég gæti notið þess að borða allan skammtin ein.




Hnetusmjörs brownie

60g smjör
60g sykurlaust súkkulaði
1 egg
1 eggjarauða
3msk Fínmalað Erytrítól frá Via-Health eða sukrin melis
1/2 tsk vanillu extract eða dropar
6 dropar Via-health original stevía
1.5-2 msk ósykrað kakó
2 tsk eða msk af hnetusmjöri

Smjör og súkkulaði sett í pott og brætt á lágum hita.
Egg, eggjarauða, strásæta, stevía og kakó þeitt vel saman í tvær mínútur.
Bætið súkkulaðið við og blandið vel.
Smyrjið með smjöri tvö lítil eldföst mót (eins og maður notar fyrir creme brulee)
Setjið helminginn af deiginu í formin, setjið sitthvora tsk eða msk af hnetusmjöri í mitt formið og svo hellið rest af deigi yfir. Bakið á 190 gráður í 10-12 mínútur.
Látið kólna. Notið hníf til að losa kökuna frá hliðum formsins og setjið á disk. Setjið smá fínmalaða strásætu yfir og berið fram með þeyttum rjóma.

Það er örugglega líka mjög gott að setja heslihnetusmjör eða núggat í stað hnetusmjörsins.




Wednesday, April 9, 2014

Bombu molar

Það hefur farið lítið fyrir blogginu síðustu vikur. Það fór mikil orka í að búa til nýjar uppskriftir til að gera fyrir bókina og ég var í ham og er komin langt á veg. Alexander Gauti minn varð 8 ára í gær og var fagnað með fjölskyldunni um helgina. Ákvað að slá tvær flugur í einu höggi og baka sykurlaust fyrir afmælið og prófa mig áfram með ýmsar uppskriftir. Ég var á síðustu stund að fá fullt af hugmyndum og tveimur tímum fyrir veisluhöld fékk ég hugmynd hvernig ég gæti gert lagtertu og auðvitað varð ég að prófa það. Ég held að ég hafi farið með eggja og rjóma met í eldhúsinu þessa daga sem ég bakaði fyrir afmælið.

Ég vil líka nota tækifærið að þakka öllum þeim fyrirtækjum sem eru að styrkja mig með vörum svo ég get bakað fyrir komandi bók.

Via-Health stevía 
Sukrin
H-Berg

Nú er bara að redda sér hænum ;)

Ég hef varla stigið fæti inn í eldhús síðan og fékk bara nóg af bakstri í bili. Hef varlað opnað excel skjalið með hugmyndum og öllum uppskriftum sem ég er vön að skoða og endurbæta hundrað sinnum á dag en þetta hefur verið ágætis hvíld.

Ég elska að eiga eitthvað til að narta í og þessar eru ótrúlega góðar til að eiga í fyrstinum og dugar fyrir mig að fá mér einn mola til að slökkva á nartþörfinni en ég vara ykkur við, þetta er fitubomba dauðans en með hollri og góðri fitu ;)



Bombu molar


1 bolli kókosolía
3 msk sykurlaust kakó (ég nota Hersey's)
2 msk hnetusmjör
15 dropar original Via-Health stevía

Kókosolía hituð í potti á.  Setjið þrjár skálar á borðið og deilið kókosolíunni á milli þeirra jafnt. Í fyrstu skálina er kakó blandað við, í skál nr 2 er hentusmjör hrært við og í þá 3 stevíudropar. Blandið hráefnum í hverri skál vel saman með skeið.

Notið lítil konfektform og setjið fyrst hreinu kókosolíuna í formin (fjöldi fer eftir stærð á formum en ég fékk um 14 mola úr mínu). Setjið í frysti í 10 mín. Því næst er hnetusmjörsblandan sett í formin og aftur sett í frysti í 10 og í lokin er súkkulaðið sett í formin og enn og aftur inn í frysti og best að geyma molana þar.

Monday, January 6, 2014

Snickers molar

Bíddu, var ég ekki nýbúin að segja frá því að nú ætlaði ég að einbeita mér meir af því að elda? 
En einhvern vegin þá verða bara gotteríin til og ég verð að blogga um það. Svo fer ég að henda inn öðru fljótlega. Eins og fyrir tveimur kvöldum. Ákvað að skella í eina karamellu en svo varð ég bara að prófa að setja hnetur í hana og svo kom hugmynd að setja súkkulaði yfir og smá salt og já það varð þetta til. Vinnufélagi minn og kona hans kláruðu skammtinn sem ég gerði á núll einni frétti ég og vilja ólm fá uppskriftina svo hingað inn fer hún :)



Snickers molar

50g smjör
1 dl rjómi
1 msk sukrin gold
1-2 msk hnetusmjör

30 g saxaðar hnetur, var sjálf með salt hnetur
Sykurlaust súkkulaði til að bræða




Smjör, rjómi, sukrin go stevíu dropar sett í pott og hrært í.
Þegar suðan kemur upp þá er stillt á lægsta hita og leyft að malla í 30-40 mín. Hræra á 10-15 mín fresti. Alls ekki hræra of mikið því þá skilur blanda sig. Einnig þarf að passa að ekki brenni við. Best að halda sig nálægt eldhúsinu, allavega þegar karamellan er gerð í fyrsta sinn.

Þegar blandan er orðin þykkri og búin að malla á lágum hita í 30-40 mín er hnetusmjöri bætt út í. Því næst er hnetur settar í og blandað vel saman við karamelluna. Sett í silikon form og inn í frysti í 1,5-2 klt eftir þykkt. Brjóta nokkra mola af súkkulaði og bræða yfir heitu vatnsbaði og setja á karamelluna. Gott að strá smá salti yfir súkkulaðið. Skera svo í litla munnbita og geyma í lokuðu íláti í ísskápnum.



Friday, January 3, 2014

Hnetusmjörskökur

Gleðilegt nýtt ár!
ótrúlegt að árið 2014 sé komið. Hvert fór tíminn? Áramótin voru tekin róleg heima á bæ með börnum og maka og tengdaforeldrum. Við erum voða líbó varðandi áramótin. Dugleg að prófa nýjan mat og fatnaður er sá sem hver og einn vill. Strákarnir voru í íþróttafötunum sínum og dóttirin, já hún var á nærbuxum og nærbol fram til klukkan níu þegar við fórum aðeins út að sprengja.



Nú er ég tilbúin að komast aftur í bakstur gírinn og hausinn byrjaður á hugmyndavinnu. Það er pínu stökk að fara úr því að vinna í skóla og geta bara skilið vinnuna eftir á sínum stað en að vinna á auglýsingastofu, þá eru hugmyndir að poppa upp í hausinn allan sólahringinn en ekki bara milli 8-16. Ég var pínu þreytt eftir nóttina því ég átti erfitt með að slökkva á heilanum og í gegnum svefninn var ég enn í vinnunni. En það er alltaf þannig fyrstu dagana í nýju hlutverki.

Ég ætla að deila með ykkur uppskrift sem ég bjó til í byrjun desember en gaf mér ekki tíma til að pósta. Þær slógu heldur betur í gegn hjá börnunum, jahh ekki stelpunni. Hún er ekki mikið fyrir hnetur og segir að hnetulykt sé ógeðsleg. (að dóttir mín skuli ekki elska hnetur, hvurslags rugl!)


Hnetusmjörskökur


50 g mjúkt smjör
2 msk hnetusmjör
70 g Sukrin Gold
80 g möndlumjöl
5 dropar Via-Health vanillu stevía
50 g smátt saxaðar salt hnetur (má sleppa)


Blanda öllu vel saman í höndum. Búa til litlar kúlur og setja á bökunarpappír. Nota gaffal til að þrýsta örlítið á kúlurnar og fletja út. Bakað við 180 gráður í 8-10 mín. Kökurnar eru mjúkar þegar þær koma úr ofninum en harðna er þær kólna.


Thursday, June 27, 2013

Karamellu fudge og blómkálspopp

Þegar það rignir bara á mann í sumarfríinu þá er ekkert skemmtilegra en að prófa nýjar uppskriftir, og það er akkúrat það sem ég hef verið að gera.
Þegar ég sá að farið er að selja lkl vænan púðursykur var ég fljót að hoppa út í búð og fjárfesta í einum poka. Uppskriftin sjálf er einföld en það þarf smá þolinmæði þar sem ekki er hægt að gæða sér á karamellunni strax.

Karamellu-hnetu fudge




50g smjör
1 dl rjómi
1 msk sukrin gold
1 tsk vanillusykur eða vanilludropar
2 msk hnetusmjör (ég setti sjálf 1 og fannst það nóg)


Smjör, rjómi, sukrin og vanillusykur sett í pott og hrært í.
Þegar suðan kemur upp þá er stillt á lágan hita og leyft að malla í 30-40 mín. Hræra á 10-15 mín fresti. Alls ekki hrær of mikið því þá skilur blanda sig. Einnig þarf að passa að ekki brenni við. Best að halda sig nálægt eldhúsinu, allavega þegar karamellan er gerð í fyrsta sinn.

Þegar blandan er orðin þykk og búin að malla á lágum hita í 30-40 mín er hnetusmjöri bætt út í. Við það þynnist blandan aðeins. Sett í silikon form og inn í frysti í 3 klt. Þegar tekið er úr frysti er karamellan skorin niður í bita og geymd í ísskáp.

ATH. Ætla ítreka hér aftur að skiptir máli að láta karamelluna malla á lágum hita, sumir eru að lenda í því að karamellan skilur sig í frystinum. Eldavélar eru misjafnar og því þarf hver og einn að finna út hversu lágt þarf að stilla vélina sína :)





Það er hægt að gera þessa án hnetusmjörs og fá gamla góða karamellubragðið. Einnig er hægt að nota Steviu dropa með piparmyntu eða öðrum bragðtegundum. Um að gera að prófa sig áfram.


Ég ákvað að dusta rykið af fínu myndavélinni minni og þrífætinum og taka fallegar myndir af blessuðu karamellunni. Svona þar sem það er nú rigning úti ;)




BLÓMKÁLSPOPP

Ég skal alveg viðurkenna það að ég er ekki mikið fyrir grænmeti. Á yfirleitt erfitt með að borða það. Ég get borðað tómata ef ég mauka þá í súpu, lauk ef hann er steiktur og núna blómkál ef ég "poppa" það :)


Blómkál er þrifið og skorið niður í litla munnbita.Stilkarnir skornir frá. Olía og salt og pipar sett í skál og kálið blandað við. Dreift á bökunarpappír og sett inn í ofn í 30 mín eða þegar það er orðið brúnað og stökkt. Gott er að hræra í þessu tvisvar sinnum við eldun.

Smakkast best heitt og er stökkt og gott og þeir sem vilja geta dýft poppinu í góða ídýfu.