Showing posts with label kaka. Show all posts
Showing posts with label kaka. Show all posts

Wednesday, January 20, 2016

Svartbauna brownies


Vikan hálfnuð og styttist því í helgina. Aftur!
Ég reyndar sit núna í sófanum með fætur upp á skemli og passa að hreyfa ekki hægri fótinn of mikið.
Ég er snillingur þegar kemur að því að meiða mig.
Ég einhvern vegin náði að togna á vöðva (held allavega að það sé tognun, fer til doksa á eftir) á meðan ég sat í sófanum í gærkvöldi að horfa á fréttir. Stóð upp og gat ekki stigið í fótinn.
Var svo viss um að þetta myndi lagast í nótt en neibb, kona var eins og 100 ára og bað börnin að aðstoða sig að ná í hluti sem voru á gólfinu eða neðarlega í skúffum.

Ég er því heppinn að eiga þessar brownies í frystinum og geta fengið mér með rjóma.
Þegar þær koma heitar úr ofninum eru þær svoooo góðar og mjúkar. Þær eru ekkert verri kaldar og smakkast þá vel með rjóma og ferskum berjum.

Það er örugglega einhverjir sem gretta sig þegar þeir sjá orðið svartbaunir sett við hliðin á brownies en ég lofa, þetta virkar!

Reyndar er deigið svo gott og þykkt að það er alveg hægt að sleppa því að baka það og bera fram sem súkkulaðimús.



Svarbauna brownies.

1 dós svartar baunir
3 meðal stór egg
5 msk kókosolía (var með bragðlausa)
150g Sukrin Gold
55g ósykrað kakó
1,5tsk vanillu essence eða dropar
1/2tsk vínsteinslyftiduft eða glútenlaust lyftiduft
100g saxað sykurlaust súkkulaði (valfrjálst)
Ef þið viljið glúten og sykurlaust súkkulaði mæli ég með IQ súkkulaðinu.

Sigtið bauninar og skolið vel.
Setjið í blandara ásamt eggjum og blandið vel saman. Bætið við restinni af hráefnunum (fyrir utan súkkulaði) og blandið vel. 
Saxið súkkulaði niður og bætið út í og blandið með sleif.

Setjið bökunarpappír í eldfast mót, mitt var 20x28 cm og setjið deigið í.
Smyrjið því jafnt út og bakið á 180 gráður í 30-35 mínútur.



Wednesday, February 11, 2015

Valentínusarkaka fyrir tvo





Ég held ekki upp á Valentínusardaginn. Finnst hann persónulega algjör óþarfi, svona þar sem hann lendir á milli bónda og konudaginn. Við heiðrum þessa daga á mínu heimili en Valentínusar er bara eins og hver annar dagur. 
En margir halda upp á þennan, dag og hann verður alltaf vinsælli með hverju ári hér á landi.

Ég er búin að vera heima með einn slappan dreng í dag og hann er ótrúlega mikil kelirófa og með rómantíska genið í sér og hann mun örugglega heiðra framtíða maka sinn á þessum degi í framtíðinni.

Svo við ákváðum að skella í eina ofur bleika og væmna köku í dag. Hún er dísæt og já, mjög bleik en smakkast samt sem áður vel. Hún er lítil og dugar fyrir tvo, jafnvel fleiri því ein lítil sneið er nóg til að metta mann.



Valentínusarkaka


1msk möndlumjöl
2msk kókoshveiti
1msk ósykrað kakó
1-2msk sukrin
1/2 tsk vínsteinslyftiduft
60ml rjómi eða kókosmjólk
2 egg
1/2tsk vanilludropar
5-7 dropar súkkulaði eða vanillu stevía


Blandið þurrefnum saman í skál. 
Egg, rjómi, vanilludropar og stevía pískað vel saman.
Blandið öllu vel saman.
Smyrjið lítið 12 cm form með smjöri og setjið helminginn af deiginu í.
Bakið á 170 gráður í ca 20 mínútur.
Látið kökuna kólna og bætið svo rest af deigi í formið og bakið eins og fyrri botninn.

Hægt er að hafa bara einn botn og minnka uppskriftina um helming.

Rjómaostakrem

150g rjómaostur
1/2-1tsk vanilludropar
1.5msk rjómi
5 dropar vanillu stevía
30g sukrin melis
smá rauður matarlitur

Setjið í skál/hrærivél og hrærið vel saman.

Þetta er dáldið stór uppskrift fyrir þá sem vilja drekka kökunni í kremi eins og við gerðum. 
Ef þið ætlið bara að gera hálfa uppskrift af kökunni, þá minnkið þið kremið líka.

Skreytið svo kökuna með smá kókosmjöli.


Wednesday, June 26, 2013

LKL væn Baby Ruth terta


Jæja, ákvað að tími til komin væri að dusta rykið af blogginu mínu og byrja aftur, nema núna með aðrar áherslur. LCHF/LKL áherslur. Nú er ég búin að vera á þessu mataræði í meir en mánuð og líkar mjög vel og búin að vera að skoða erlend og íslensk blogg og prófa mig áfram.



Það var samt eitt sem virkilega vantaði, það var Baby Ruth mín. Svo það var ekki annað að gera en að búa til LKL væna Baby Ruth til að njóta og verð ég að segja að hún heppnaðist bara ansi vel :)






Botn:

3 eggjahvítur
2 dl Erythiol eða önnur sæta
100g salthnetur
20g heslihentur eða aðrar hentur

Eggjahvítur og sæta stífþeytt saman. Hnetur eru malaðar niður og svo blandað rólega við hvíturnar.
Bakað á 175 gráður í 25-30 mín.

Botninn verður brúnn og hann er mjúkur þegar hann kemur úr ofninum heitir en harðnar þegar hann kólnar.

Krem:

3 eggjarauður
50g sukrin melis
50g smjör
100g súkkulaði 85%


Eggjarauðurnar og sæta þeyttar saman (smekksatriði hve mikið af sætu er notuð) Smjör og súkkulaði blandað saman. Þegar súkkulaðið er aðeins farið að kólna er eggjarauðunum bætt rólega út í. Þegar krem hefur kólnað er það sett á botninn og svo þeyttur rjómi ofan á :)