Erfitt hefur verið fyrir mig að dröslast inn í eldhús og útbúa eitthvað gott með kaffinu. Ég er alltaf með fullt af hugmyndum af girnilegum mat/eftirréttum en það er víst ekki nóg heldur þarf einnig að framkvæma.
Þar sem það er föstudagur er um að gera að vera í baksturshugleiðingum fyrir helgina.
Hér er uppskrift af sykurlausri vanillu ostaköku.
Já ég er dáldið mikið fyrir ostakökur ;)
Vanilluostakaka
Botn:
100 g smjör
120 g möndlumjöl
2 msk. sukrin gold
Bræðið smjör í potti ásamt möndlumjöli og sukrin
gold. Blandið vel saman.
Dreifið á bökunarpappír og
bakið á 180 gráðum í 5 mínútur eða þar til botninn er
orðinn gullinbrúnn. Látið kólna, myljið niður og setjið í
springform með bökunarpappír á botninum.
Fylling
200 g rjómaostur
2 egg - aðskilja rauður
og hvítur
2 dl rjómi
80 g sukrin gold
1 tsk. vanilluextrakt
½ vanillustöng
Stífþeytið eggjahvítur
ásamt fræjum úr
vanillustöng.
Rauðurnar eru þeyttar
ásamt rjómaosti, sukrin
gold, vanilluextrakti.
Rjóminn er þeyttur;
öllu er blandað saman og
dreift ofan á botninn.
Sett í
frysti í 2-3 klst.
Skreytið með bræddu
súkkulaði eða hnetum.
No comments:
Post a Comment